Seigla Sálfræði- Og Ráðgjafastofa

Sálfræðingar Seiglu hafa mikla reynslu af vinnu með leik- og grunnskólum, starfsfólki skóla, nemendum og foreldrum. Við sinnum ráðgjöf, handleiðslu, greiningum og viðtalsmeðferðum. Einnig bjóðum við upp á fyrirlestra og námskeið.

Viðtalsmeðferð og greining

Viðtalsmeðferð

Sálfræðingar Seiglu sinna viðtalsmeðferð fyrir börn, unglinga, ungmenni og foreldra. Í fyrsta viðtali er lögð áhersla á kortlagningu vandans og er í flestum tilvikum mælt með að foreldrar barna undir 11 ára aldri mæti án barnsins í fyrsta viðtal. Við vinnum með fjölbreyttan vanda, tilfinningavanda, hegðunarvanda og uppeldisráðgjöf.

Greiningar

Sálfræðingar Seiglu sinna greiningum barna og unglinga . Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð og að koma málum í viðeigandi farveg í framhaldi af greiningu.

Starfsfólk

Starfsfólk

Drífa Jenný Helgadóttir

Sálfræðingur og eigandi

Lilja Magnúsdóttir

Sálfræðingur og eigandi

Ráðgjöf & Námskeið og fyrirlestrar

Ráðgjöf

Hjá Seiglu starfa sérfræðingar með víðtæka reynslu. Við tökum að okkur handleiðslu fyrir ýmsa hópa t.d. heilbrigðisstarfsfólk og starfsfólk grunn- og leikskóla. 

Námskeið og fyrirlestrar

Við bjóðum upp á fyrirlestra vegna tilfinningavanda, kvíða og fyrirlestra með heilsueflandi nálgun þar sem lögð er áhersla á að byggja upp þrautseigju hjá börnum. Hægt er að óska eftir fyrirlestrum og námskeiðum með því að hafa samband á netfangið seigla@seiglasal.is.

Til að bóka tíma og fá frekari upplýsingar er hægt að hafa samband á netfangið ritari@seiglasal.is og í síma 537-0440.

Scroll to Top